ÞÚ ERT LÍKLEGA MÓÐIR...
...ef þú felur þig inni á baðherbergi til að geta verið
ein smástund.
...ef þú hefur verið í jogginggalla alla helgina.
...ef fæturnir á þér festast í klístrinu á eldhúsgólfinu og þér
er alveg sama.
...ef það er líklegra að þú verðir fyrir eldingu en að þú fáir
ótruflaðan 8 tíma svefn.
...ef þú hefur aðeins tíma til að raka annan fótlegginn í
einu.
...ef þín skilgreining á góðum degi er að halda geðheilsunni
...ef þú þværð barninu í framan með munnvatnsbleyttum
þumalfingrinum.
...ef þú gerir ósjálfrátt tvöfaldan hnút á allt sem þú
hnýtir.
...ef þér finnst góð lyktin af soðnum gulrótum með
eplamauki.
...ef þú ert farin að kaupa morgunkorn með sykurpúðum.
...ef þér tekst að setja ólíkar tegundir matvæla á disk, án þess
að nokkrar þeirra snertist.
...ef þú vonar að tómatsósa sé grænmeti, af því að það er það
eina sem barnið borðar.
..ef þú byrjar alltaf á að skera matinn þinn í litla bita og
leyfir öðrum að borða af disknum þínum.
...ef þú segir setningar eins og: "ekki setja pastað í nefið á
þér...!"
...ef þú telur nammið á hverjum kökubita svo allir fái
jafnt.
...ef þú velur veitingastaði eftir gæðum barnamatseðilsins og
dótinu sem fylgir með.
...ef þú ferð á fætur kl 5:30 á hverjum degi, hefur ekki tíma
til að borða (hvað þá að drekka eða fara á klósettið) og samt tekst
þér að þyngjast um 5 kíló!
...ef símtölin þín eru sífellt slitin í sundur af setningum eins
og: "Ekki skrifa á vegginn!" "Kötturinn er ekki leikfang!" "Nei,
skrifborðið á ekki að vera í sófanum!" "Hættu að toga í hárið á
systur þinni" "Bíddu aðeins á meðan ég næ í þráðlausa símann, ég
þarf að skipta á barninu/gefa barninu að borða/ finna barnið!!"
...ef þú nærð að hlaupa í gegnum alla íbúðina (og um leið setja
barnið í stólinn sinn, hoppa yfir tvö öryggishlið, velta þremur
taukörfum, hrasa um leikfang, hundinn og bolta á ganginum) og svara
símanum áður en kviknar á símsvaranum. Um leið hefur þú öðlast
réttindi til þáttöku í fjölþraut og átt góða möguleika á að vinna
gullið!
...ef þú hefur litlar áhyggjur af bauki og bramli, en fyllist
skelfingu ef allt er hljótt.
...ef þú heyrir rödd móður þinnar þegar þú segir: "Nei, ekki
þegar þú ert í sparifötunum!"
...ef þú ert hætt að gagnrýna uppeldi móður þinnar á þér og
syskinum þínum.
...ef þú ert farin að raula Disney-lög yfir uppvaskinu.
...ef þú færð barnapíu til að komast loksins út með manninum
þínum og eyðir svo hálfu kvöldinu í að athuga hvernig gangi
heima.
...ef þú segir á hverjum degi: "Ég er ekki rétta manneskjan í
þetta starf" en myndir samt ekki vilja skipta um hlutverk við
nokkurn annan.
EF KARLMENN GENGU MEÐ BÖRNIN?
Væri barneignarfrí á fullum launum lágmark tvö ár...
Væri búið að finna lækningu við appelsínuhúð...
Væri "náttúruleg" fæðing úr sögunni...
Væri morgunógleði talin helsta heilsuvandamál þjóðarinnar...
Væri árangur getnaðarvarnapilla 100%...
Væru börn geymd á spítalanum þar til þau kynnu sjálf að fara á
kopp...
Væru menn æstir í að binda sig...
Væru tvíburar ekki svona rosalega krúttlegir í þeirra
augum...
Yrðu synir að vera komnir heim af stefnumótinu klukkan tíu á
kvöldin....
Væru óléttuföt helsta tískuframleiðsla heims...
Væru þeir rúmliggjandi alla níu mánuðina...
Myndu konur stjórna heiminum...